Seljandi er Uva ehf, kt. 6001121390. Kaupandi er sá aðili sem er skráður kaupandi á reikningi. Kaupandi verður að hafa náð lögaldri til þess að eiga viðskipti í netverslun Uva, https://uvavino.is/
Verð er alltaf með 24% virðisaukaskatti. Uva áskilur sér rétt til að breyta verði án fyrirvara. Öll verð eru í íslenskum krónum og eru birt með fyrirvara um prentvillur og myndarugl. Uva áskilur sér rétt til að hætta við viðskiptin hafi rangt verð eða röng mynd fylgt vörunni á vefsíðunni. Skilaréttur er 14 dagar frá afhendingu. Vörur þurfa að vera í sínu upprunalega ástandi og kvittun þarf að fylgja. Sendingarkostnaður er ekki endurgreiddur nema um ranga eða gallaða vöru sé að ræða.
Sendingarkostnaður bætist við verð vöru áður en greiðsla fer fram.
Afgreiðslutími er 3-4 virkir dagar eftir að greiðsla hefur borist, að því gefnu að varan sé til á lager.
Þegar pöntun er tilbúin til afhendingar, er kaupenda send tilkynning í tölvupósti.
Vörur eru afhentar samkvæmt samkomulagi á lager Uva; Hverfisgötu 71, 101 Reykjavík.