Aconcagua, Leyda verð 2.997 kr.. Ég reyni almennt að forðast Pinot Noir frá Suður Ameríku, yfirleitt geta þau verið svolítið sultukennd og vantar ferskleikann, þess vegna var gaman að smakka Pinot Noir sem minnti mig á gott Oregon Pinot Noir. Sem sagt góð jarðaberja, sveppa, eikar og sveitar einkenni. Eftirbragðið er tannínríkt og langt. Vínið smell passar með fuglakjöti.