Þetta er dökkt og sólbakað vín, ávöxturinn er heitur, sætur og kryddaður. Þroskaðar plómur, nánast út í sveskjur og svört ber, lakkrís og vanilla, eikin nokkuð áberandi. Kröftug tannín en all mjúk, langt með þykkum, þurrkuðum, sætum ávexti.

Mjög góð kaup. Með til dæmis pottréttum eða bragðmiklum ostum.

Verð

Tegund

Þrúgur

Framleiðandi

Land

Hérað

Passar með