1884 President’s Blend, sem er blanda úr þrúgunum Malbec (85%), Cabernet Sauvignon (10%) og Syrah (5%) er massivt og mikið vín, dimmrautt út í fjólublátt á lit með kröftugri angan af sólberjum, krækiberjum og plómum, ávöxturinn heitur og sultukenndur, rennur saman við mikla vanillu og krydd, kanil, pipar, dökkristaðar kaffibaunir, aflmikið í munni en samt mjúkt og heitt, með sætum og feitum ávexti og silkimjúkum tannínum. Umhellist.
Frábær kaup. Þetta er topp-Malbec og á fínu verði sem slíkur. Með stórsteikunum.