Þetta er stórt og mikið vín, þykkur berjasafinn er djúpur og sætur, bláber og sólber, angan af sólbökuðum villtum kryddjurtum, fennel, lavender og vanilla. Flauelsmjúkt og feitt í munni með langan endi og næga sýru til að halda víninu uppi og veita því ferskleika.
Frábær kaup. Hörkuvín fyrir góðar ribeye og Tomahawk-steikur. Villibráð.